Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 10. nóvember 2026
Hér er lýst hvernig Gjafaland ehf. (Plugg) fer með persónuupplýsingar. Fyrirspurnir og beiðnir sendist á sala@plugg.is.
1. Ábyrgðaraðili
Gjafaland ehf., kt. 460519-1280, Aðalstræti 24, 400 Ísafjörður. Netfang: sala@plugg.is. Plugg er ábyrgðaraðili upplýsinga um viðskiptavini sína (seljendur) og notendur plugg.is.
2. Upplýsingar um seljendur
Netfang og lykilorð (geymt dulkóðað), nafn fyrirtækis, kennitala og heimilisfang, lén verslana, stillingar eininga, reikningar og greiðslustaða, og skilaboð sem þú sendir okkur, t.d. beiðnir um nýjar einingar.
Til að staðfesta fyrirtæki sækjum við upplýsingar úr opinberri fyrirtækjaskrá Skattsins og skoðum opinberar síður verslunarinnar.
3. Upplýsingar um gesti verslana
Einingar í verslunum geta unnið upplýsingar um gesti verslunarinnar: netföng í sprettiglugga og Láttu mig vita (ásamt vöru og tungumáli), skilaboð í spjalli og upplýsingar sem gestur gefur þar, val um vafrakökur og tölfræði um viðbætur í körfu. IP-tölur eru aðeins vistaðar sem óafturkræfur kóði (hash) til að verjast misnotkun.
Þar er verslunin ábyrgðaraðili og Plugg vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi í 11. grein skilmálanna. Gestir sem vilja nýta réttindi sín snúa sér til verslunarinnar.
4. Tilgangur og lagagrundvöllur
Til að veita þjónustuna og innheimta greiðslur (samningur, b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).
Til að uppfylla lagaskyldur, t.d. um bókhald (c-liður).
Til að tryggja öryggi, koma í veg fyrir misnotkun og staðfesta fyrirtæki (lögmætir hagsmunir, f-liður).
5. Undirvinnsluaðilar
Supabase (gagnagrunnur og innskráning), Vercel (hýsing), Google (Gemini, svör spjallmennis), Konto ehf. (reikningar og kröfur) og þjónusta sem sendir tölvupóst (SMTP). Ef verslun tengir eigin póstþjón er hann notaður fyrir hennar tölvupóst.
Ef gögn eru flutt út fyrir EES er það gert á grundvelli staðlaðra samningsákvæða framkvæmdastjórnar ESB eða sambærilegra ráðstafana.
6. Varðveisla
Upplýsingar um seljendur eru varðveittar á meðan aðgangur er virkur. Reikningar og bókhaldsgögn eru varðveitt í 7 ár samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994.
Upplýsingum um gesti verslunar er eytt þegar verslun eða einingu er eytt, eða fyrr að beiðni verslunarinnar.
7. Vafrakökur
plugg.is notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur til innskráningar. Einingar í verslunum nota staðbundna geymslu vafrans (localStorage) fyrir virkni, t.d. til að muna að sprettigluggi hafi verið lokaður eða hvaða gjaldmiðill var valinn. Plugg notar ekki rakningar- eða auglýsingakökur.
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi gagna og að andmæla vinnslu. Sendu beiðni á sala@plugg.is.
Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
9. Breytingar
Stefnan getur breyst. Verulegar breytingar eru tilkynntar seljendum með tölvupósti.