plugg.

Skilmálar

Síðast uppfært 10. nóvember 2026

Þessir skilmálar gilda um notkun á Plugg (plugg.is) og þeim einingum sem þar eru í boði fyrir Shopify verslanir. Með því að stofna aðgang samþykkir þú skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins sem þú skráir.

1. Um Plugg

Plugg er rekið af Gjafaland ehf., kt. 460519-1280, Aðalstræti 24, 400 Ísafjörður, VSK-nr. 134984. Netfang: sala@plugg.is.

2. Þjónustan

Plugg býður einingar (t.d. tilkynningastiku, spjallmenni og sprettiglugga) sem tengjast Shopify verslun með einni línu af kóða. Einingarnar eru virkjaðar og stilltar í stjórnborði Plugg.

Þjónustan er eingöngu ætluð fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri, ekki neytendum.

3. Aðgangur og upplýsingar um fyrirtæki

Þú berð ábyrgð á að upplýsingar um fyrirtækið séu réttar og að kennitalan tilheyri fyrirtækinu sem rekur verslunina. Plugg getur staðfest þetta með fyrirtækjaskrá og vef verslunarinnar og sent reikninga eingöngu á staðfest fyrirtæki.

Þú berð ábyrgð á að halda lykilorði leyndu og á allri notkun aðgangsins.

4. Leyfi

Hver kóði (lykill) er leyfður fyrir eina verslun og eitt lén, auk www-útgáfu og myshopify-slóðar sömu verslunar. Óheimilt er að nota kóðann á fleiri verslunum, afrita einingarnar eða selja þær áfram.

Eftir að verslun hefur tengst er hægt að breyta léninu einu sinni á 30 daga fresti.

5. Prufutími og fríar einingar

Gjaldskyldar einingar fylgja 14 daga ókeypis prufutíma. Prufutíminn gildir einu sinni fyrir hverja einingu og hvert lén, einnig ef verslun er eytt og sett inn aftur.

Fríar einingar kosta ekkert. Plugg getur breytt eða hætt að bjóða fríar einingar með 30 daga fyrirvara.

6. Verð og greiðslur

Verð eru mánaðarverð í íslenskum krónum án virðisaukaskatts. Verð einingar helst óbreytt eftir að hún hefur verið virkjuð nema Plugg tilkynni breytingu með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara.

Reikningur er sendur eftir á fyrsta virka dag hvers mánaðar fyrir liðinn mánuð, sem krafa í heimabanka. Hver eining er rukkuð fyrir þá daga sem hún var virk eftir prufutímann. Eindagi er 14 dögum eftir útgáfudag.

Ef reikningur er ógreiddur meira en 14 dögum eftir eindaga er gjaldskyldum einingum lokað tímabundið þar til greitt hefur verið. Dráttarvextir reiknast samkvæmt lögum nr. 38/2001.

7. Uppsögn

Þú getur sagt upp einingu hvenær sem er í stjórnborðinu. Greitt er fyrir þá daga sem einingin var virk til og með uppsagnardegi. Engin binding er og enginn uppsagnarfrestur.

Þú getur eytt verslun eða aðgangi hvenær sem er. Notkun sem ekki hefur verið reikningsfærð er þá rukkuð á næsta reikningi.

Plugg getur lokað aðgangi sem brýtur gegn skilmálunum, t.d. við misnotkun leyfis, rangar fyrirtækjaupplýsingar eða vanskil.

8. Ábyrgð verslunarinnar

Þú berð ábyrgð á efni og stillingum eininganna í versluninni þinni, t.d. textum, afsláttarkóðum, tilboðum og frestum, og á því að verslunin fylgi lögum, m.a. um neytendavernd, markaðssetningu og vafrakökur.

Spjallmennið byggir svör á upplýsingum um verslunina og gervigreind. Svör geta verið röng eða ófullkomin og verslunin ber ábyrgð á upplýsingum sem viðskiptavinum eru veittar.

Þýðingar og áætluð verð í öðrum gjaldmiðlum eru til leiðbeiningar.

9. Rekstur og breytingar

Plugg leggur áherslu á að þjónustan sé aðgengileg og virki með algengum Shopify þemum, en ábyrgist ekki að hún sé alltaf aðgengileg, villulaus eða virki með öllum þemum og öppum. Einingar geta verið uppfærðar og bættar án fyrirvara.

10. Takmörkun ábyrgðar

Plugg ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem tapaðri sölu, hagnaði eða gögnum. Heildarábyrgð Plugg takmarkast við þá upphæð sem þú greiddir Plugg síðustu 3 mánuði áður en tjónið varð.

11. Vinnsla persónuupplýsinga fyrir verslunina (vinnslusamningur)

Sumar einingar vinna persónuupplýsingar um gesti verslunarinnar, t.d. netföng í sprettiglugga og Láttu mig vita, spjall og skráningu á samþykki fyrir vafrakökum. Þar er verslunin ábyrgðaraðili og Plugg vinnsluaðili samkvæmt 28. gr. persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR) og lögum nr. 90/2018. Þessi grein telst vinnslusamningur aðila.

Plugg vinnur gögnin eingöngu til að veita þjónustuna og samkvæmt fyrirmælum verslunarinnar, tryggir trúnað starfsmanna, viðeigandi öryggisráðstafanir og aðstoðar verslunina við að svara beiðnum skráðra einstaklinga.

Plugg notar undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í persónuverndarstefnunni og tilkynnir um breytingar á þeim. Plugg tilkynnir versluninni um öryggisbrest án ótilhlýðilegrar tafar.

Þegar verslun eða einingu er eytt er gögnum um gesti hennar eytt. Verslunin getur sótt netföng úr sprettiglugga áður.

12. Breytingar á skilmálum

Plugg getur breytt skilmálunum. Verulegar breytingar eru tilkynntar með tölvupósti með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara.

13. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Ef útgáfum skilmálanna ber ekki saman gildir íslenska útgáfan.