Seldu meira í hverri pöntun
Sá sem kaupir lopapeysu vantar oft vettlinga og trefil líka, en finnur þá ekki sjálfur. Oft keypt saman sýnir vörur sem passa saman beint á vörusíðunni og í körfunni, og viðskiptavinurinn setur allt í körfu með einum smelli. Shopify velur vörurnar sjálfkrafa, eða þú ræður hvað birtist.
Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.
🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.
Sjáðu hana í virkni
Þetta er raunveruleg viðbót í gangi á dæmiverslun. Prófaðu að smella.
Hvað gerir hún?
Pakki á vörusíðu
Þessi vara og vörur sem passa með, með hökum, samtals verði og einum hnappi: Setja öll í körfu.
Tillögur í körfunni
Í körfunni og hliðarkörfunni birtast viðbætur sem viðskiptavinurinn er ekki þegar með.
Sjálfvirkt val
Shopify mælir með vörum út frá kaupsögu og lýsingum. Engin uppsetning nauðsynleg.
Eða þínar reglur
Veldu hvaða vörur birtast með hverri vöru, og varavörur þegar ekkert annað finnst.
Stærðir og litir
Viðskiptavinurinn velur afbrigði beint í pakkanum. Uppseldum vörum er sleppt.
Þú sérð árangurinn
Í stjórnborðinu sérðu hversu oft og fyrir hve mikið var bætt í körfu í gegnum eininguna.
Það sem þú getur stillt
- ✓Vörusíða, karfa og hliðarkarfa (kveikt/slökkt)
- ✓Fjöldi vara í pakka og í körfu
- ✓Sjálfvirkt val eða þínar eigin reglur
- ✓Varavörur
- ✓Sleppa uppseldum vörum
- ✓Allir textar og enska fyrir ferðamenn
- ✓Litir
Dæmi um notkun
Fatnaður
Lopapeysa + vettlingar + trefill. Viðskiptavinurinn tekur allan pakkann í stað einnar flíkur.
Smávörur í körfunni
Kerti, kort eða gjafapoki fyrir nokkur hundruð krónur. Lítil viðbót í hverri pöntun safnast upp.
Myndir


Komin í gang á 3 mínútum
- 1
Stofnaðu aðgang og skráðu verslunina þína.
- 2
Settu eina línu af kóða í Shopify þemað. Einu sinni, fyrir allar viðbætur.
- 3
Virkjaðu viðbótina og stilltu hana. Breytingar birtast strax.
Spurt og svarað
›Þarf ég að velja vörurnar?
Nei. Shopify velur sjálfkrafa. Þú getur bætt við eigin reglum ef þú vilt stjórna valinu.
›Virkar þetta með hliðarkörfunni minni?
Já, með flestum þemum. Í Dawn og skyldum þemum opnast hliðarkarfan sjálfkrafa eftir að vörum er bætt í hana, annars fer viðskiptavinurinn í körfuna.
›Get ég gefið afslátt af pakkanum?
Já, með sjálfvirkum afslætti í Shopify (t.d. 10% við kaup á 3 vörum). Einingin sýnir vörurnar og Shopify sér um afsláttinn.
Oft keypt saman
Stingdu upp á vörum sem passa saman, á vörusíðu og í körfunni. Hærri meðalpöntun án aukavinnu.
Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.
🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.
Aðrar viðbætur
Svartur föstudagur
Niðurtalning, afsláttarkóði og sprettigluggi fyrir Svartan föstudag. Alveg frítt.
Tilkynningastika
Stika efst á síðunni með skilaboðum, tengli og niðurtalningu.
Jólasendingar
Sýndu síðasta pöntunardag fyrir jól með niðurtalningu, á stiku og við hverja vöru. Alveg frítt.
Spjallmenni (gervigreind)
Spjallmenni sem þekkir vörurnar þínar og svarar viðskiptavinum á íslensku, allan sólarhringinn.
Afsláttur gegn netfangi
Sprettigluggi sem býður afslátt í skiptum fyrir netfang. Byggðu upp póstlista og fáðu fleiri fyrstu kaup.
Frí heimsending
Sýnir hve mikið vantar upp á fría heimsendingu, í beinni út frá körfunni. Hækkar meðalupphæð pantana.
Vafrakökuborði
Vafrakökuborði á íslensku sem uppfyllir persónuverndarlög og tengist Shopify. Alveg frítt.
Láttu mig vita
Viðskiptavinir skrá netfang á uppseldar vörur og fá tölvupóst um leið og varan kemur aftur. Engin glötuð sala.
Gjafainnpökkun
Viðskiptavinir velja gjafainnpökkun og skrifa kveðju á kort beint í körfunni. Allt birtist á pöntuninni.
Verð í erlendri mynt
Ferðamenn sjá áætlað verð í sinni mynt við hliðina á krónuverðinu. Gengi uppfært daglega.
Merkimiðar á vörur
Útsala, Nýtt, Uppselt eða Íslensk framleiðsla beint á vörumyndirnar. Birtist sjálfkrafa.
Traust og greiðsluleiðir
Örugg greiðsla, skilaréttur og greiðsluleiðir eins og Netgíró og Pei, beint undir kaupahnappnum. Alveg frítt.