plugg.
← Allar viðbætur
Láttu mig vita

Ekki missa söluna þegar vara klárast

Þegar vinsæl vara eða stærð klárast fer viðskiptavinurinn oftast annað og kemur ekki aftur. Með Láttu mig vita skilur hann eftir netfangið sitt á vörusíðunni. Við athugum lagerinn á klukkutíma fresti og sendum honum tölvupóst um leið og varan er komin aftur, með hnappi beint á vöruna.

Prófa frítt í 14 daga
2.490 kr. / mán. án VSK

Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.

🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.

Sjáðu hana í virkni

Sláðu inn netfang við uppseldu vöruna.

Hvað gerir hún?

📭

Birtist bara þegar þarf

Reiturinn birtist aðeins þegar valin vara eða stærð er uppseld. Annars sést ekkert.

📏

Eftir stærð og lit

Ef L er uppselt en M ekki, fær viðskiptavinurinn tilkynningu um nákvæmlega þá stærð sem hann vildi.

⏰

Sjálfvirkt

Við athugum lagerinn á klukkutíma fresti og sendum póstinn sjálfkrafa. Þú þarft ekkert að gera.

✉️

Fallegur tölvupóstur

Með mynd af vörunni, nafni verslunarinnar og hnappi beint á vöruna. Svör fara beint til þín.

🌍

Á íslensku og ensku

Íslenskir viðskiptavinir fá póst á íslensku, ferðamenn á ensku.

📈

Sjáðu eftirspurnina

Sjáðu hvaða vörur og stærðir fólk bíður eftir, frábær vísbending um hvað á að panta inn.

Það sem þú getur stillt

  • ✓Textar í reitnum á vörusíðunni
  • ✓Efni, texti og hnappur í tölvupóstinum
  • ✓Enska fyrir ferðamenn (kveikt/slökkt)
  • ✓Litir
  • ✓Athuga lager handvirkt hvenær sem er

Dæmi um notkun

Vinsæl stærð klárast

Lopapeysa í L klárast. 14 manns skrá sig. Þegar sendingin kemur fá allir 14 póst innan klukkutíma.

Innkaup

Listinn sýnir að 30 bíða eftir ákveðnum vettlingum, svo þú veist hvað á að panta meira af.

Myndir

Láttu mig vita
Láttu mig vita

Komin í gang á 3 mínútum

  1. 1

    Stofnaðu aðgang og skráðu verslunina þína.

  2. 2

    Settu eina línu af kóða í Shopify þemað. Einu sinni, fyrir allar viðbætur.

  3. 3

    Virkjaðu viðbótina og stilltu hana. Breytingar birtast strax.

Spurt og svarað

›Hvaðan fer tölvupósturinn?

Hann fer í nafni verslunarinnar þinnar og svör viðskiptavina fara á netfangið þitt.

›Hversu fljótt er sent?

Við athugum lagerinn á klukkutíma fresti, svo pósturinn fer í síðasta lagi um klukkutíma eftir að varan kemur aftur. Þú getur líka ýtt á Athuga núna.

›Fær viðskiptavinurinn marga pósta?

Nei, aðeins einn póst fyrir hverja skráningu.

Láttu mig vita

Viðskiptavinir skrá netfang á uppseldar vörur og fá tölvupóst um leið og varan kemur aftur. Engin glötuð sala.

Prófa frítt í 14 daga
2.490 kr. / mán. án VSK

Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.

🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.

Aðrar viðbætur

Svartur föstudagur

Niðurtalning, afsláttarkóði og sprettigluggi fyrir Svartan föstudag. Alveg frítt.

Frítt

Tilkynningastika

Stika efst á síðunni með skilaboðum, tengli og niðurtalningu.

990 kr. / mán. án VSK

Jólasendingar

Sýndu síðasta pöntunardag fyrir jól með niðurtalningu, á stiku og við hverja vöru. Alveg frítt.

Frítt

Spjallmenni (gervigreind)

Spjallmenni sem þekkir vörurnar þínar og svarar viðskiptavinum á þeirra tungumáli (íslensku, ensku, pólsku og fleiri), allan sólarhringinn.

9.990 kr. / mán. án VSK

Afsláttur gegn netfangi

Sprettigluggi sem býður afslátt í skiptum fyrir netfang. Byggðu upp póstlista og fáðu fleiri fyrstu kaup.

1.490 kr. / mán. án VSK

Frí heimsending

Sýnir hve mikið vantar upp á fría heimsendingu, í beinni út frá körfunni. Hækkar meðalupphæð pantana.

990 kr. / mán. án VSK

Vafrakökuborði

Vafrakökuborði á íslensku sem uppfyllir persónuverndarlög og tengist Shopify. Alveg frítt.

Frítt

Gjafainnpökkun

Viðskiptavinir velja gjafainnpökkun og skrifa kveðju á kort beint í körfunni. Allt birtist á pöntuninni.

1.490 kr. / mán. án VSK

Verð í erlendri mynt

Ferðamenn sjá áætlað verð í sinni mynt við hliðina á krónuverðinu. Gengi uppfært daglega.

990 kr. / mán. án VSK

Oft keypt saman

Stingdu upp á vörum sem passa saman, á vörusíðu og í körfunni. Hærri meðalpöntun án aukavinnu.

2.990 kr. / mán. án VSK

Merkimiðar á vörur

Útsala, Nýtt, Uppselt eða Íslensk framleiðsla beint á vörumyndirnar. Birtist sjálfkrafa.

990 kr. / mán. án VSK

Traust og greiðsluleiðir

Örugg greiðsla, skilaréttur og greiðsluleiðir eins og Netgíró og Pei, beint undir kaupahnappnum. Alveg frítt.

Frítt

Textareitir

Settu texta á valinn stað í versluninni, bara á réttu vörurnar og á réttum tíma. Án þess að breyta þemanu.

990 kr. / mán. án VSK

Vörusamanburður

Viðskiptavinir bera saman allt að 4 vörur hlið við hlið: verð, framboð, afbrigði og eiginleika.

1.990 kr. / mán. án VSK

Óskalisti

Viðskiptavinir vista vörur á óskalista og deila honum, t.d. fyrir jólin.

1.990 kr. / mán. án VSK

Snjallleit

Leit sem sýnir vörur með myndum og verði um leið og skrifað er, líka með innsláttarvillum.

2.990 kr. / mán. án VSK

Stærðartafla

Rétta stærðartaflan á réttum vörum, með cm og tommum. Færri skil.

990 kr. / mán. án VSK

Persónugerð vöru

Áletrun, nafn eða val á vörusíðunni sem fylgir pöntuninni, með forskoðun.

1.990 kr. / mán. án VSK

Hafðu samband hnappur

WhatsApp, Messenger, sími og tölvupóstur í einum hnappi í horni verslunarinnar.

990 kr. / mán. án VSK

Íslenskir dagar

Stika með niðurtalningu fyrir bóndadag, konudag, mæðradag og fleiri daga. Alveg frítt.

Frítt

Afhending

Afhendingarleiðir, verð og áætlaður afhendingardagur á vörusíðunni, með niðurtalningu að sendingartíma.

1.490 kr. / mán. án VSK

Fríhamur

Stika með heimkomudegi og sendingardegi á meðan þú ert í fríi, eða lokað fyrir pantanir. Alveg frítt.

Frítt

Karfan bíður

Þegar viðskiptavinur með vörur í körfunni fer í annan flipa verður titillinn „(2) Karfan þín bíður 🛒“. Alveg frítt.

Frítt

Fyrirtækjaviðskipti

Kennitala og nafn fyrirtækis í körfunni, verð án VSK og hnappur til að óska eftir tilboði.

2.490 kr. / mán. án VSK

SEO

Skilaréttur og sending fyrir Google, upplýsingar um fyrirtækið og vikuleg SEO-úttekt.

1.990 kr. / mán. án VSK

Mega menu

Stór og skýr valmynd með vöruflokkum, vörum, myndum og leit. Án þess að breyta þemanu.

1.990 kr. / mán. án VSK