SEO: vörurnar þínar betur sýnilegar í Google og vikuleg úttekt á versluninni
Shopify þemu senda Google ekki allt sem Google vill fá. Search Console varar þá við því að skilarétt og sendingu vanti á vörurnar, og verslunin fær síðri birtingu í leitarniðurstöðum. SEO viðbótin bætir þessu við og fer svo yfir verslunina einu sinni í viku og segir þér hvað má bæta, á íslensku.
Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.
🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.
Sjáðu hana í virkni
Fyrir neðan sérðu gögnin sem Google fær fyrir sýnisvöru: skil, sendingu, fyrirtækið og brauðmola.
Hvað gerir hún?
Skilaréttur og sending
Bætir skilarétti og sendingu við allar vörur, eins og Google biður um. Viðvaranirnar í Search Console hverfa.
Upplýsingar um fyrirtækið
Nafn, merki, heimilisfang, kennitala og samfélagsmiðlar, svo Google tengi verslunina við fyrirtækið.
Brauðmolar
Forsíða > Safn > Vara í leitarniðurstöðum í stað langrar slóðar.
Vikuleg úttekt
Vörur án lýsingar, myndir án alt texta, of langir titlar, tvítekin lýsing, síður sem vantar á öðru tungumáli og fleira, með einkunn og hvað breyttist.
Það sem þú getur stillt
- ✓Skilaréttur: dagar, hvernig er skilað og hver greiðir
- ✓Sendingarverð, frí sending og afhendingartími
- ✓Upplýsingar um fyrirtækið
- ✓Brauðmolar
- ✓Vikuleg úttekt og samantekt í tölvupósti
Dæmi um notkun
Viðvaranir í Search Console
„Missing field hasMerchantReturnPolicy“ og „shippingDetails“ hverfa án þess að snerta kóða þemans.
Hvar á að byrja?
Úttektin raðar því sem skiptir mestu máli efst, með tengli á staðinn í Shopify þar sem því er breytt.
Komin í gang á 3 mínútum
- 1
Stofnaðu aðgang og skráðu verslunina þína.
- 2
Settu eina línu af kóða í Shopify þemað. Einu sinni, fyrir allar viðbætur.
- 3
Virkjaðu viðbótina og stilltu hana. Breytingar birtast strax.
Spurt og svarað
›Les Google upplýsingar sem eru settar inn með JavaScript?
Já. Google keyrir JavaScript og les gögnin sem viðbótin bætir við. Ef þemað er þegar með vöruupplýsingar er bætt við þær í stað þess að búa til aðrar.
›Breytir úttektin einhverju í versluninni?
Nei. Hún les bara opnar síður verslunarinnar og þarf engin réttindi í Shopify. Þú lagar sjálf/ur það sem hún bendir á.
SEO
Skilaréttur og sending fyrir Google, upplýsingar um fyrirtækið og vikuleg SEO-úttekt.
Engin kreditkort. Reikningur í heimabanka eftir prufutímann.
🌍 Virkar á öllum tungumálum verslunarinnar: íslensku, ensku og pólsku strax, önnur tungumál bætir þú við í stjórnborðinu.
Aðrar viðbætur
Svartur föstudagur
Niðurtalning, afsláttarkóði og sprettigluggi fyrir Svartan föstudag. Alveg frítt.
Tilkynningastika
Stika efst á síðunni með skilaboðum, tengli og niðurtalningu.
Jólasendingar
Sýndu síðasta pöntunardag fyrir jól með niðurtalningu, á stiku og við hverja vöru. Alveg frítt.
Spjallmenni (gervigreind)
Spjallmenni sem þekkir vörurnar þínar og svarar viðskiptavinum á þeirra tungumáli (íslensku, ensku, pólsku og fleiri), allan sólarhringinn.
Afsláttur gegn netfangi
Sprettigluggi sem býður afslátt í skiptum fyrir netfang. Byggðu upp póstlista og fáðu fleiri fyrstu kaup.
Frí heimsending
Sýnir hve mikið vantar upp á fría heimsendingu, í beinni út frá körfunni. Hækkar meðalupphæð pantana.
Vafrakökuborði
Vafrakökuborði á íslensku sem uppfyllir persónuverndarlög og tengist Shopify. Alveg frítt.
Láttu mig vita
Viðskiptavinir skrá netfang á uppseldar vörur og fá tölvupóst um leið og varan kemur aftur. Engin glötuð sala.
Gjafainnpökkun
Viðskiptavinir velja gjafainnpökkun og skrifa kveðju á kort beint í körfunni. Allt birtist á pöntuninni.
Verð í erlendri mynt
Ferðamenn sjá áætlað verð í sinni mynt við hliðina á krónuverðinu. Gengi uppfært daglega.
Oft keypt saman
Stingdu upp á vörum sem passa saman, á vörusíðu og í körfunni. Hærri meðalpöntun án aukavinnu.
Merkimiðar á vörur
Útsala, Nýtt, Uppselt eða Íslensk framleiðsla beint á vörumyndirnar. Birtist sjálfkrafa.
Traust og greiðsluleiðir
Örugg greiðsla, skilaréttur og greiðsluleiðir eins og Netgíró og Pei, beint undir kaupahnappnum. Alveg frítt.
Textareitir
Settu texta á valinn stað í versluninni, bara á réttu vörurnar og á réttum tíma. Án þess að breyta þemanu.
Vörusamanburður
Viðskiptavinir bera saman allt að 4 vörur hlið við hlið: verð, framboð, afbrigði og eiginleika.
Óskalisti
Viðskiptavinir vista vörur á óskalista og deila honum, t.d. fyrir jólin.
Snjallleit
Leit sem sýnir vörur með myndum og verði um leið og skrifað er, líka með innsláttarvillum.
Stærðartafla
Rétta stærðartaflan á réttum vörum, með cm og tommum. Færri skil.
Persónugerð vöru
Áletrun, nafn eða val á vörusíðunni sem fylgir pöntuninni, með forskoðun.
Hafðu samband hnappur
WhatsApp, Messenger, sími og tölvupóstur í einum hnappi í horni verslunarinnar.
Íslenskir dagar
Stika með niðurtalningu fyrir bóndadag, konudag, mæðradag og fleiri daga. Alveg frítt.
Afhending
Afhendingarleiðir, verð og áætlaður afhendingardagur á vörusíðunni, með niðurtalningu að sendingartíma.
Fríhamur
Stika með heimkomudegi og sendingardegi á meðan þú ert í fríi, eða lokað fyrir pantanir. Alveg frítt.
Karfan bíður
Þegar viðskiptavinur með vörur í körfunni fer í annan flipa verður titillinn „(2) Karfan þín bíður 🛒“. Alveg frítt.
Fyrirtækjaviðskipti
Kennitala og nafn fyrirtækis í körfunni, verð án VSK og hnappur til að óska eftir tilboði.
Mega menu
Stór og skýr valmynd með vöruflokkum, vörum, myndum og leit. Án þess að breyta þemanu.