plugg.

VSK í Shopify: svona stillir þú 24% og 11% rétt

Uppfært: 11. nóvember 2026

Rangur VSK í vefverslun þýðir annaðhvort að þú borgar of mikið eða lendir í vandræðum hjá Skattinum. Hér er hvernig virðisaukaskattur virkar fyrir íslenska vefverslun og hvernig þú stillir hann í Shopify. Þetta er almenn leiðbeining, ekki skattaráðgjöf. Ef þú ert í vafa skaltu tala við bókarann þinn.

Tvö þrep: 24% og 11%

Almennt þrep virðisaukaskatts er 24% og lægra þrepið er 11%. Flestar vörur eru í 24% þrepi, en til dæmis matvara og bækur eru í 11% þrepi.

Þegar verð er gefið upp með VSK er skatturinn 19,35% af verðinu í 24% þrepi og 9,91% í 11% þrepi. Dæmi: í vöru sem kostar 12.400 kr. með VSK eru 2.400 kr. virðisaukaskattur.

Hvenær þarftu að skrá þig?

Ef þú selur fyrir minna en 2.000.000 kr. án VSK á hverju 12 mánaða tímabili þarftu ekki að innheimta VSK. Þegar þér má vera ljóst að salan fari yfir þessi mörk þarftu að skrá þig á virðisaukaskattsskrá. Athugaðu að átt er við 12 mánaða tímabil, ekki almanaksárið.

Ef þú ert ekki á skrá máttu ekki rukka VSK. Ef reikningur segir samt að VSK sé innifalinn þarf að skila skattinum í ríkissjóð.

Verð með VSK í Shopify

  1. Farðu í Settings > Taxes and duties í Shopify admin.
  2. Veldu að verð innihaldi skatt (til dæmis All prices include tax). Neytendur á Íslandi eiga að sjá endanlegt verð með VSK.
  3. Athugaðu að skatthlutfallið fyrir Ísland sé 24%.
  4. Gakktu úr skugga um að hakað sé við Charge tax on this product á vörunum.

Vörur í 11% þrepi

Ef þú selur vörur í lægra þrepi, til dæmis matvöru eða bækur, þarf að stilla 11% fyrir þær sérstaklega. Í Shopify er það gert með undantekningu (tax override) fyrir safn (collection) sem inniheldur þessar vörur.

Sending og sala til útlanda

Spurðu bókarann hvernig fara skal með VSK af sendingarkostnaði og stilltu Shopify í samræmi við það.

Sala á vörum sem eru sendar úr landi getur verið undanþegin VSK, en reglurnar eru flóknari. Ræddu þær við bókara áður en þú stillir Shopify fyrir útlönd.

Gátlisti

  • Verð í Shopify eru skráð með VSK.
  • Hver vara er í réttu þrepi.
  • Prufupöntun sýnir réttan VSK á kvittuninni.
  • Bókarinn fær skýrslu úr Shopify fyrir hvert uppgjörstímabil.

Fleiri leiðbeiningar